Sundleiðir
2500 metrar - Landvættasund
Ræst er sunnanvert úr víkinni (Hitaveitu- eda Volgruvík) sunnan við Hitaveitutangann og synt fyrir hann, beygt til norðurs og umhverfis bauju sem er í vatninu nærri Bræðratanga. Svo er synt til baka fyrir tangann og inn í víkina norðanverða. Þar er markið. Sundið er um 2500 metra langt.
1250 metrar - Hálft Landvættasund
Ræst er sunnanvert úr víkinni (Hitaveitu- eda Volgruvík) sunnan við Hitaveitutangann og synt fyrir hann, beygt til norðurs og umhverfis bauju sem er á miðri 2500 m brautinni. Svo er synt til baka fyrir tangann og inn í víkina norðanverða. Þar er markið. Sundið er um 1250 metra langt.
500 metrar - Ungmenna- og skemmtisund
Ræst er sunnanvert úr víkinni (Hitaveitu- eða Volgruvík) sunnan við Hitaveitutangann, synt út fyrir bauju sem er um 250 m úti á víkinni og synt til baka í mark í norðanverðri víkinni. Leiðin er um 500 m löng.