Skráning er hafin í Urriðavatnssund 2024
Kæru sundáhugamenn um land allt !
Nú er skráning hafin í Urriðavatnssundið 2024. Það mun að öllu forfallalausu fara fram 27. júlí 2024.
Smellið á hnappinn hér fyrir ofan til að skrá ykkur. Athugið að við tökum eingöngu við greiðslu með millifærslu í banka. Þið fáið svarpóst þegar þið hafið skráð ykkur með öllum nauðsynlegum upplýsingum.
F. h. undirbúningsnefndar
Þórunn Hálfdanardóttir